Löggilding sem fasteignasali
Menntun sem framhaldsskólakennari
MA frá Sussex University
BA frá Háskóla Íslands
Stúdent frá Menntaskólanum á Akureyri
Hef unnið við ráðgjöf fyrirtækja og einstaklinga frá 1997 fyrir Ferska ehf. Á meðal viðskiptavina eru fasteignafélög m.a. í Bretlandi, bankar, fjárfestingastjóðir, sprotafyrirtæki og einstaklingar.
Sem ráðgjafi og fjárfestir hef ég unnið að fasteignaþróunar-verkefnum í Bretlandi, unnið mat á fjárfestingarverkefnum fyrir banka og fjárfestingasjóði og selt íbúðir, hús og lóðir í Bretlandi og á Íslandi.
Auk þessa hef ég starfað sem sölu-og markaðsstjóri á matvælamarkaði, framkvæmdastjóri á smásölu-markaði, í iðnframleiðslu og útflutningsfyrirtæki. Einnig unnið að stofnun og uppsetningu sprota- fyrirtæka í Bretlandi og á Íslandi.
Árni Helgason sá um sölu á íbúð fyrir okkur systkinin í vor. Öll hans þjónusta var fyrsta flokks og salan gekk fljótt og vel fyrir sig. Hans verðmat á eigninni reyndist vera hárrétt. Mín bestu meðmæli!
Brjánn Ingason, 24. júlí 2018
Árni Helgason seldi íbúðina fyrir okkur núna í sumar. Við þurftum að ná að selja eignina okkar sem fyrst og vann hann verkið fyrir okkur hratt en fagmannlega. Þar sem við búum á Dalvík héldum við að þetta yrði eitthvað snúnara en svo var ekki. Við fengum frábæra þjónustu og engin vandamál, hvorki við að koma eigninni á sölu né þegar hún var seld. Það sem skipti okkur miklu máli var hvað hann hélt okkur vel upplýstum allt ferlið og var alltaf tilbúinn að svara öllum okkar spurningum.
Takk fyrir okkur,
Jóna og Emil, 26. ágúst 2018